Neysla áfengis hefur fjölþætt áhrif á lýðheilsu og samfélag og á stóran þátt í fjölmörgum sjúkdómum. Áhrif áfengisneyslu koma einnig fram í löggæslu, félagsmálum, afbrotum og ofbeldi og neikvæðum áhrifum áfengisneyslu á aðra en neytandann sjálfan.

Áfengi truflar starfsemi heila. Eftir því sem meira er innbyrt af áfengi slævast fleiri heilastöðvar og þar á meðal þær sem stjórna grundvallar líkamsstarfsemi. Eftir neyslu stórra skammta verður til dæmis öndunarstöðin fyrir áhrifum og hætta er á öndunarstöðvun og þar með dauða.

Áfengi hefur slævandi áhrif á heilann. Sá hluti heilans sem áfengið hefur fyrst áhrif á stjórnar hömlum okkar. Það þýðir að þegar áfengis er neytt losnar um hömlur og við verðum líklegri til að gera hluti sem við myndum ekki framkvæma ef við værum allsgáð.

Áfengi hefur áhrif á nánast alla líkamshluta og líffæri. Þegar áfengis er neytt eru um 20% alkóhólsins tekin upp gegnum magavegginn og berast síðan hratt með blóðrásinni um allan líkamann. 80% eru hins vegar tekin upp í smáþörmum og berast þaðan með portæðinni til lifrarinnar, þar sem því er brennt.

Akstur undir áhrifum áfengis eða annarra vímuefna er ein af þremur algengustu orsökum banaslysa í umferðinni. Auk þess verða margir fyrir alvarlegu heilsutjóni, jafnvel ævarandi örorku, vegna ölvunaraksturs.

Skortur á reynslu, ómótuð sjálfsmynd og öryggisleysi getur gert ungmennum erfitt með að þola hópþrýsting og standa við sannfæringu sína. Ungir ökumenn sem skortir reynslu í umferðinni og eru jafnvel að öðlast fyrst reynslu af áhrifum áfengis eru í sérstakri áhættu.

Hvað er Beina brautin?

Beina brautin er fræðsluverkefni um áhrif áfengis á ökuhæfni og umferðaröryggi, ætlað ungu fólki á aldrinum 16-18 ára (10. bekkur grunnskóla og 1. og 2. bekkur framhaldsskóla). Efnið samanstendur af sex sjálfstæðum þemum sem mynda eina heild. Það hentar vel til kennslu í lífsleikni eða sem liður í námsgreinum eins og líffræði og samfélagsfræði.

Markmið verkefnisins er að auka þekkingu og vitund ungmenna um hættuna af ölvunarakstri.

Forsendur: Á aldrinum 16-18 ára er ungt fólk að undirbúa sig fyrir og öðlast ökuréttindi. Á þessum tíma er félagslegi þátturinn mikilvægur og áhrif frá félögunum eru gífurlega sterk. Í ökunáminu og á fyrstu mánuðum og árum eru lögð drög að framtíðarhegðun í umferðinni og ökumenn öðlast dýrmæta reynslu. Það fylgir því mikil ábyrgð að stjórna ökutæki. Umferðarslys geta valdið alvarlegu heilsutjóni og dauða. Þar skiptir ökumaðurinn, hegðun hans og ákvarðanir sköpum.

Áhrif áfengis og annarra vímuefna á ökuhæfni eru vel þekkt og rekja má mörg slys og dauðsföll í umferðinni til ölvunar- og vímuefnaaksturs. Ölvunar- og vímuefnaakstur varðar ekki bara ökumanninn sjálfan. Við þurfum öll, aðrir ökumenn, hjólreiðafólk og gangandi vegfarendur, að geta verið örugg um að dómgreind og færni ökumanna sé eins og best verður á kosið.

Ákveðinn hluti 16-18 ára ungmenna er farinn að neyta áfengis og fáeinir að prófa önnur vímuefni. Þess vegna er mikilvægt að þau geri sér grein fyrir hvað það þýðir að aka eftir neyslu þeirra.  Þótt flestir hafi fengið einhverja fræðslu um afleiðingar ölvunaraksturs og almenn vitund sé í samfélaginu um þá hættu sem ölvunar- og vímuefnaakstur skapar þá er ekki mikið um fræðsluefni fyrir ungt fólk þar sem sérstaklega og ítarlega er fjallað um áhrif ávana- og vímuefna á ökuhæfni og umferðaröryggi og afleiðingar áfengis- og vímuefnaaksturs.

Verkefnið er unnið af Brautinni, bindindisfélagi ökumanna. Meginmarkmið félagsins er að stuðla að umferðaröryggi, þar á meðal að vekja athygli á áhrifum áfengis og annarra vímuefna á ökuhæfni.

Nánari upplýsingar um Brautina er að finna á https://www.brautin.is/.

Eftir einn – ei aki neinn

Það er stórhættulegt að aka undir áhrifum áfengis og annarra vímuefna. Áfengisneysla, jafnvel þótt lítil sé, skerðir hæfni okkar til aksturs með margvíslegum hætti. Það sama á við um önnur vímuefni sem hafa áhrif á miðtaugakerfið. Vímuefnaakstur setur ökumanninn, farþega í bíl hans og aðra vegfarendur í mikla hættu. Þess vegna eru umferðarlögin afdráttarlaus um ölvunar- og vímuefnaakstur.

Enginn má neyta áfengis eða annarra örvandi eða deyfandi efna við stjórn vélknúins ökutækis.

Áfengi og önnur vímuefna hafa þau áhrif að við eigum erfiðara með að meta fjarlægðir og hraða annarra ökutækja. Slævandi áhrif áfengis gera það til dæmis að verkum að dómgreind okkar minnkar og við gerum okkur seinna grein fyrir hættum en ella. Vegna lakari samhæfingar skynfæra og heila verða viðbrögð hægari og ónákvæmari. Við þetta bætist svo að sjónsviðið þrengist og sjón í myrkri versnar.

Ölvunar- og vímuefnaakstur getur valdið ökuleyfissviptingu og refsingu í formi sektar eða fangelsis. Tjón sem verður á ökutæki ökumannsins í slíkum tilvikum verður hann iðulega að bera sjálfur. Þessu til viðbótar geta þeir sem valda tjóni undir áhrifum áfengis og annarra vímuefna átt von á endurkröfu frá vátryggingarfélögum sem greitt hafa bætur fyrir annan skaða sem rekja má til vímuaksturs.